30. ágúst - 3. september 2010
Vanda málið ekkert vandamál
Það er gaman að geta þess að Vanda málið, nýja heildstæða námsefnið okkar í íslensku, hefur heldur betur slegið í gegn. Fyrsta prentun af öllum bókunum er uppseld og fengu færri en vildu. Við erum þó að vinna í næstu prentun og munum tilkynna þegar hún kemur í hús. Kennarar, nemendur og foreldrar hafa líka tekið vefsíðunni sem fylgir efninu fagnandi og er hún mikið sótt. Við vinnum nú hörðum h0ndum að því að tína inn nýtt efni á síðuna og munum bæta við efni í hverri viku. Biðjum við ykkur því að fylgjast vel með. |
30. ágúst - 3. september 2010
Vandamálið
Upplestur og ný aukaverkefni

Við höldum áfram að kynna fyrir ykkar nýja heildstæða námsefnið í íslensku fyrir miðstig, sem við köllum Vanda málið. Hefur það efni sannarlega vakið mikla athygli og margir skólar hafa fjárfest í því. Er svo komið að Lesbók A og Vinnubók A fyrir 5. bekk eru að verða uppseldar. Í síðustu viku sögðum við ykkur frá hugtakaskýringunum sem eru í opinni dagskrá og allir geta því haft not af. Er hægt að nota það efni í tengslum við hvaða námsefni í íslensku sem er. Þessa vikuna kynnum við til sögunnar hlustunarþáttinn, ný aukaverkefni, sem margir hafa beðið eftir.
Upplestur
Eins og við vorum búin að lofa verður hægt að nálgast alla textana í lesbókunum upplesna á vefnum í kvenlestri og karllestri og nú þegar erum við búin að setja inn kvenlestur á mörgum fyrstu textunum í lesbókum A á öllum stigum, þ.e. Þetta er málið, Ekki málið og Minnsta málið. Þá eru einnig komnir flestir karllestrarnir með Minnsta málið. Athugið að þið getið hlaðið textunum inn á ipod eða í iTunes og brennt þá á diska.
Ný aukaverkefni
Við kynnum til sögunnar ný áhugaverð aukaverkefni með námsefninu Vanda málið, sem bjóða upp á mikla og skemmtilega möguleika, ekki síst fyrir þá sem eiga í einhverjum erfiðleikum með lestur. Verkefnin byggja á því að stafir eru teknir út úr textunum og nemendur eiga að reyna að átta sig sig á hvaða stafir það eru og bæta þeim inn í. Er verkefnunum skipt í 3 þyngdarstig, eftir því hve margir stafir eru fjarlægðir. Hægt er að vinna með þessi verkefni á ólíka vegu, þ.e. bæði hægt að leyfa nemendum að lesa textann réttan áður, láta þá hlusta á þá um leið og þeir vinna verkefnið eða bara reyna að átta sig á textanum án þess að þeir hafi nokkuð kynnst honum áður. Til þess þurfa nemendurnir þó að vera mjög færir í slíku. Við hvetjum alla til að skoða þessi nýju verkefni og vekjum athygli á því að verkefnin er hægt að nota sjálfstætt óháð megin efninu.
|
23.-27. ágúst 2010
Nýjung í námi
Ég læri um.... Ástralíu.
„Ég læri..." efnið er nýr og áhugaverður valkostur sem Skólavefurinn býður upp á í námi og hentar vel duglegum einstaklingum sem hafa hug á að bæta við sig þekkingu og fróðleik og skemmta sér í leiðinni. Efnið hentar jafn vel í kennslustofunni, sem og heima. Kostir efnisins eru margir.

Í fyrsta lagi kennir þetta nemendum að vinna sjálfstætt og að verða sér úti um upplýsingar, í öðru lagi verður þekking sem fólk þarf sjálft að afla sér oft varanlegri og situr lengur eftir og síðast en ekki síst gefur þetta fólki aukið val á viðfangsefnum, þ.e. það getur sniðið námið meira að eigin áhuga og þörfum. Segja má að hér sé í raun bara um umgjörð og leiðarvísir að ræða fyrir einstaklinga til að tileinka sér þá þekkingu sem þeir eru að leita eftir. Þetta tiltekna verkefni tekur fyrir Ástralíu, en má hæglega færa yfir á hvaða land sem er, ef frá eru talin myndir og kort, en við munum á næstunni bæta fleiri löndum við. Við hvetjum ykkur svo til að vinna þessi verkefni í samvinnu við aðra. Það er t.a.m. mjög sniðugt að fjölskyldur eða vinir vinni sameiginlega að slíkum verkefnum. Þannig má búa til markvissar samverustundir þar sem allir geta notið sín.
Vinnuhefti: Ég læri um Ástralíu.
|
30. ágúst - 3. september 2010
Skrift - Nýtt námsefni

Margir skólar hafa komið að máli við okkur varðandi nýtt námsefni í skrift, og eins og fyrri daginn reynum við að svara kallinu. Skrift 1 er fyrsta bókin í nýrri ritröð sem Skólavefurinn er að fara af stað með og er fyrst og fremst hugsuð til að þjálfa börn í skrift. Létum við útbúa leturgerðina sérstaklega fyrir þessa útgáfu. Við gerð hennar fylgdum við þeirri stafagerð sem hefur verið notuð í skólum á undanförnum árum en breyttum þó á stöku stað. Vonum við að þær breytingar sé flestum þóknanlegar, en við vitum að margir hafa sterkar skoðanir á þessu og vilja sem minnstar breytingar. Við teljum þó að breytingarnar sem hér eru gerðar séu ekki þess eðlis að þær séu til vansa. Vildum við gjarnan heyra í sem flestum varðandi það. Í þessari fyrstu bók einbeitum við okkur að stafrófinu.
|
23.-27. ágúst 2010
Bætið lesskilninginn í ensku með sögunni The Canterville Ghost eftir Oscar Wilde - 5. kafli

Það er alltaf gott að þjálfa sig betur í enskunni og ekki er það verra ef hægt er að gera það með því að fylgja eftir skemmtilegri og vel skrifaðri sögu eins og þessari, The Canterville Ghost eftir snillinginn Oscar Wilde. Sagan er í sjö köflum og er bæði hægt að nálgast efnið í sérútbúinni prentútgáfu og í aðgengilegri vefútgáu þar sem þið getið hlustað á hana upplesna. Hverjum kafla fylgja ágæt verkefni.
|
|
23.-27. ágúst 2010
Vanda málið
Nýtt námsefni í íslensku!

Vanda málið nefnist nýtt heildstætt námsefni í íslensku fyrir miðstig. Það samanstendur í grunninn af tveimur lesbókum fyrir hvern árgang og tveimur vinnubókum. Samhliða bókunum er svo mikið efni á vef, bæði gagnvirkt og til útprentunar. Á vefnum er boðið upp á góðan skilgreiningabanka á flestum ef ekki öllum þeim atriðum sem nemendur þurfa að kunna í íslensku á miðstigi, hvort sem um er að ræða bókmenntir, málfræði eða stafsetningu. Á vefnum er líka boðið upp á gagnvirkar útfærslur á öllum þeim æfingum sem er að finna í vinnubókunum og fleiri æfingar í sem þjálfa sömu atriði. Þá er á vefnum einnig hægt að hlusta á alla textana í lesbókunum upplesna. Og síðast en ekki síst er á vefnum hægt að nálgast kennarabækur með öllu efninu. Þessa vikuna kynnum við sérstaklega hugtakabankann, en þó svo að hann sé eyrnamerktur Vanda málinu má einnig nota hann með öðru námsefni.
|
Stuðningur við lesblinda nemendur

Við hjá Skólavefnum höfum lengi vitað að Skólavefurinn nýtist nemendum með lesraskanir vel og hafa skólar og fyrirtæki sem vinna með lesblindum bent á Skólavefinn sem hjálpartæki fyrir þessa nemendur. Nú höfum við á Skólavefnum útbúið sérstaka stuðningssíðu fyrir nemendur með lesraskanir.
Við tökum þar saman tengla á efni sem er vel til þess fallið að hjálpa þessum hópi. Þessi síða er þá einskonar gátt fyrir nemendur með lesraskanir að efni sem hentar þessum hópi vel. Lögð er áhersla á að finna efni sem er upplesið, myndrænt, með gagnvirkum æfingum, myndbandsskýringum og stækkanlegu letri.
|



|